lopidraumur
Freyr yfirdýna
Freyr yfirdýna
Ekki tókst að hlaða
Yfirdýnan Freyr er úr íslenskri ull og stuðlar að heilnæmum svefni. Yfirdýnan getur aukið gæði svefnsins því hún aðlagar sig vel að líkamanum og er unnin úr náttúrulegum efnum.
Íslenska ullin er sérstök vegna þess hve vel hún andar sem hefur temprandi áhrif á líkamann. Yfirdýnan er einstaklega létt og meðfærileg.
Hentar vel fyrir þá sem kjósa náttúrulegar og sjálfbærar vörur.
Yfirdýnan má fara í þvottavél og þurrkara.
Yfirdýnurnar fást einnig hjá Svefn og heilsu og Vogue.
Kostir
Rannsóknir sýna að ullarvörur bæta svefninn. Ullin í yfirdýnunum er kembd þannig að meira loftrými myndast milli þráðanna sem gefur einstaka einangrun. Ullin býr yfir þeim eiginleikum að geta dregið í sig raka, allt að 30% af eigin þyngd. Ullin flytur því hita og raka til og frá líkamanum og viðheldur réttu og þægilegu hitastigi.
Gott að vita
Íslensk ull
Sjálfbærni
Temprandi
Umhverfisvæn
Auðvelt að þvo
Létt og andar vel
STANDARD 100 by OEKO-TEX®
Tæknilegar upplýsingar
Stærð 90 x 200 cm
Heildarþyngd 4,0 kg
Þyngd fyllingar 1,5 kg
Fylling 100% Íslensk ull
Áklæði 100% Bómull – Batiste
11,5-12,5 Tog (Einangrun)


